Umsókn um styrk frá ADHD samtökunum fta.

Málsnúmer 202511154

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 292. fundur - 09.12.2025

Tekin fyrir rafpóstur dags. 26.11.2025 frá Hrannari B. Arnarsyni, framkvæmdarstjóra ADHD samtakanna þar sem hann óskar eftir að styrk til samtakanna helst þannig að það myndi tryggja íbúum sveitarfélagsins eða starfsfólk þess viððeigndi fræðslu um ADHD á komandi ári. Einnig kemur fram í bréfinu að ADHD samtökin bjóða margskonar fræðslu, fyrir leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttafélög, félagsmiðstöðvar, foreldra, almenning og starfsfólk og stjórnendur fyrirtækja og stofnanna og er eitt helsta markmið samtakanna að sem flestir hópar samfélagsins, fái notið þessarar fræðslu, ekki síst þeir hópar sem vinna með börnum. Með því móti vinnum við gegn fordómum og bætum lífsskilyrði og starfsumhverfi allra í sveitarfélaginu.
Félagsmálaráð synjar erindinu með fimm greiddum atkvæðum og félagsmálaráð hvetur fræðsluráð að skoða erindið með opnum huga.

Fræðsluráð - 312. fundur - 10.12.2025

Tekið fyrir erindi frá ADHD samtökunum dags. 26. nóvember 2025
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að fá fræðslu um ADHD fyrir íbúa og starfsmenn leik - og grunnskóla. Sviðsstjóra er falið að vinna skipulag með ADHD samtökunum.