Fjárhagsáætlun 2024; Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

Málsnúmer 202306076

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1072. fundur - 29.06.2023

Tekið fyrir erindi frá Dalvíkurkirkju, dagsett þann 17. júní 2023, þar sem óskað er eftir styrk til greiðslu fasteignagjalda 2024 vegna Dalvíkurkirkju og safnaðarheimilis.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar menningarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2024.

Menningarráð - 97. fundur - 07.09.2023

Tekið fyrir bréf frá Sóknarnefnd Dalvíkurkirkju dags. 17.06.2023. Umsókn um styrk til greiðslu á fasteignaskatti.
Menningarráð samþykkir samhljóða með þremur atkvæðum og sviðstjóra er falið að koma erindi inn í fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2024.