Orkuskipti í höfnum - beiðni um upplýsingar

Málsnúmer 202004043

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 95. fundur - 06.05.2020

Með rafpósti 4. apríl 2020 kemur fram að: "Sem liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er stefnt að orkuskiptum í höfnum og haftengdri starfsemi, þ.e. að tryggja innviðuppbyggingu sem stuðli að notkun endurnýjanlegra orkugjafa í stað jarðefnaeldsneytis.

Í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var fyrir skemmstu er gert ráð fyrir 300 m.kr. til ýmissa verkefna á sviði orkuskipta, þ.m.t. til haftengdrar starfsemi. Verkefni sem styrkt verða af umræddum fjármunum þurfa að hefjast eigi síðar en 1. sept. 2020 og skal vera lokið fyrir 1. apríl 2021."
Með rafpósti sem barst 4. maí 2020 fylgdi sem viðhengi excelskjal til útfyllingar.
Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að ganga frá og skila inn umsókn til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis vegna framangreinds erindis.

Veitu- og hafnaráð - 96. fundur - 03.06.2020

Með rafpósti, sem dagsettur er 15. maí 2020, barst eftirfarandi tilkynning um úthlutun styrkja til orkuskipta í höfnum.
"Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið ákvörðun um skiptingu þeirra fjármuna sem ætlaðir eru til orkuskipta í höfnum af sérstöku fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar.
Allir þeir aðilar sem sendu inn fullnægjandi gögn innan tilskilins tímafrests fá styrk. Styrkupphæð til einstakra verkefna nemur um 24% af áætluðum heildarkostnaði verkefna."

Styrkurinn sem Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar fékk er kr. 10,3 m.kr.
Veitu- og hafnaráð þakkar það framlag sem umhverfis- og auðlindaráðherra úthlutaði Hafnasjóði til orkuskipta í Dalvíkurhöfn.