Frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns; Ósk um auka fjárveitingu vegna kaupa á listaverki

Málsnúmer 201709161

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 839. fundur - 12.10.2017

Undir þessum lið vék Bjarni Th. Bjarnason af fundi vegna vanhæfis kl. 14:06.

Tekið fyrir erindi frá forstöðumanni bóka- og héraðasskjalasafns, ódagsett en móttekið þann 25. september 2017 í rafpósti, þar sem óskað er eftir fjárveitingu til kaupa á verkinu 2,34 eftir listamanninn Guðlaug Arason (GARASON). Óskað hefur verið eftir tilboði frá listamanninum og fylgir það með orðrétt. Í söfnunar- og útlánastefnu Listaverkasafns Dalvíkurbyggðar kemur m.a. fram:
"Stefnt er að því, ef fjárhagur leyfir, að kaupa myndverk eftir listamenn sem búsettir eru í sveitafélaginu, þegar þeir halda sína aðra sýningu, hafi sveitafélagið ekki eignast verk eftir öðrum leiðum. Taka þarf sérstaka ákvörðun um önnur form listaverka“. Með vísan í þessa klausu er hér óskað eftir sérstakri ákvörðun um kaup á listaverki sem sennilega myndi flokkast sem annað form listaverka.

Verðið á verkinu er 1,3 m.kr. og óskað er eftir kr. 900.000 aukafjárveitingu að upphæð kr. 900.000 við fjárhagsramma 2018 til kaupa á listaverkinu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til gerðar fjárhagsáætlunar 2019 og felur forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns að kanna möguleika á styrkjum til að auka líkur á að sveitarfélagið geti eignast þetta verk, sbr. tilboð og tillögur frá listamanninum.

Byggðaráð - 876. fundur - 06.09.2018

Á 839. fundi byggðaráðs þann 12. október 2017 var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið vék Bjarni Th. Bjarnason af fundi vegna vanhæfis kl. 14:06. Tekið fyrir erindi frá forstöðumanni bóka- og héraðasskjalasafns, ódagsett en móttekið þann 25. september 2017 í rafpósti, þar sem óskað er eftir fjárveitingu til kaupa á verkinu 2,34 eftir listamanninn Guðlaug Arason (GARASON). Óskað hefur verið eftir tilboði frá listamanninum og fylgir það með orðrétt. Í söfnunar- og útlánastefnu Listaverkasafns Dalvíkurbyggðar kemur m.a. fram: "Stefnt er að því, ef fjárhagur leyfir, að kaupa myndverk eftir listamenn sem búsettir eru í sveitafélaginu, þegar þeir halda sína aðra sýningu, hafi sveitafélagið ekki eignast verk eftir öðrum leiðum. Taka þarf sérstaka ákvörðun um önnur form listaverka“. Með vísan í þessa klausu er hér óskað eftir sérstakri ákvörðun um kaup á listaverki sem sennilega myndi flokkast sem annað form listaverka. Verðið á verkinu er 1,3 m.kr. og óskað er eftir kr. 900.000 aukafjárveitingu að upphæð kr. 900.000 við fjárhagsramma 2018 til kaupa á listaverkinu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til gerðar fjárhagsáætlunar 2019 og felur forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns að kanna möguleika á styrkjum til að auka líkur á að sveitarfélagið geti eignast þetta verk, sbr. tilboð og tillögur frá listamanninum."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar menningarráðs og óskar eftir rökstuddri tillögu að afgreiðslu. Byggðaráð óskar jafnframt eftir að menningarráð komi með tillögu að stefnu um kaup og viðhald listaverka.

Menningarráð - 69. fundur - 19.09.2018

Menningarráð hefur mikinn áhuga á listaverkinu 2,34 í ljósi skírskotunar til byggðalagsins. Í ljósi þess að ekki liggur fyrir stefna Dalvíkurbyggðar um kaup, viðgerðir og varðvörslu listaverka leggur menningarráð til að ákvörðun um kaup á listaverkinu 2,34 verði frestað þar til sú stefna liggur fyrir.

Byggðaráð - 879. fundur - 26.09.2018

Á 69. fundi menningarráðs þann 19. september 2018 var meðal annars eftirfarandi bókað varðandi hugmyndir um kaup á listaverkinu 2,34 eftir listamanninn Guðlaug Arason, sbr. erindi frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns sem móttekið var 25. september 2017 og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2019:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar menningarráðs og óskar eftir rökstuddri tillögu að afgreiðslu. Byggðaráð óskar jafnframt eftir að menningarráð komi með tillögu að stefnu um kaup og viðhald listaverka.
Menningarráð hefur mikinn áhuga á listaverkinu 2,34 í ljósi skírskotunar til byggðalagsins. Í ljósi þess að ekki liggur fyrir stefna Dalvíkurbyggðar um kaup, viðgerðir og varðvörslu listaverka leggur menningarráð til að ákvörðun um kaup á listaverkinu 2,34 verði frestað þar til sú stefna liggur fyrir. "

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.