Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2016.

Málsnúmer 201611121

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 818. fundur - 12.04.2017

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Þorsteinn G. Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi hjá KPMG Akureyri, Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Valdís Guðbrandsdóttir, aðalmaður í sveitarstjórn, Valdemar Þór Viðarsson, aðalmaður í sveitarstjórn og Íris Hauksdóttir, varamaður í sveitarstjórn, kl. 13:00.



Allir aðalmenn í sveitarstjórn og sviðsstjórar voru boðaðar á fundinn undir þessum lið.



Þorsteinn G. Þorsteinsson fór yfir helstu niðurstöður og forsendur ársreiknings 2016.



Rekstrarniðurstaða samstæðu er jákvæð um kr. 249.298.000. Handbært fé frá rekstri er jákvætt um kr. 327.966.000. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum voru kr. 272.881.000, söluverð eigna var kr. 112.187.000. Lántaka var kr. 100.000.000 og afborgun lána kr. 171.030.000.





Þorsteinn G., Eyrún, Börkur, Hlynur, Valdís, Valdemar og Íris viku af fundi kl. 13:58.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2016 til fyrri umræðu í sveitarstjórn,

Sveitarstjórn - 291. fundur - 12.04.2017

Á 818. fundi byggðaráðs þann 12. apríl 2017 var ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2016 lagður fram og honum vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn.



Til máls tók:



Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr ársreikningi 2016.



Helstu niðurstöður ársreiknings Dalvíkurbyggðar 2016 eru:



Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta samstæða er jákvæð um kr. 249.298.000.

Rekstrarniðurstaða A- hluta er jákvæð um kr. 139.616.000.

Breyting á lífeyrisskuldbindingu A- og B- hluta var kr. 44.538.000 en gert var ráð fyrir kr. 55.688.000.

Launakostnaður alls án lífeyrisskuldbindinga var kr. 1.033.604.000 fyrir A- og B- hluta.

Handbært fé frá rekstri A- og B- hluta samstæða kr. 327.966.000.

Fjárfestingarhreyfingar A- og B- hluta samstæða kr. 272.881.000.

Söluverð rekstrarfjármuna A- og b-Hluta samstæða kr. 112.187.000.

Lántaka A- og B- hluta samstæða kr. 100.000.000.

Afborganir langtímalána A- og B- hluta samstæða kr. 171.030.000.

Skuldaviðmið er 53,7% fyrir A- og B- hluta.

Langtímaskuldir A- og B- hluta alls kr. 566.936.000, þar af kr. 248.444.909 vegna félagslegra íbúða eða 32,13%.



Fleiri tóku ekki til máls.



Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2016 til síðari umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn - 292. fundur - 10.05.2017

Á 291. fundi sveitarstjórnar þann 12. apríl 2017 var eftirfarandi bókað við fyrri umræðu:

"Á 818. fundi byggðaráðs þann 12. apríl 2017 var ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2016 lagður fram og honum vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Til máls tók: Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr ársreikningi 2016. Helstu niðurstöður ársreiknings Dalvíkurbyggðar 2016 eru: Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta samstæða er jákvæð um kr. 249.298.000. Rekstrarniðurstaða A- hluta er jákvæð um kr. 139.616.000. Breyting á lífeyrisskuldbindingu A- og B- hluta var kr. 44.538.000 en gert var ráð fyrir kr. 55.688.000. Launakostnaður alls án lífeyrisskuldbindinga var kr. 1.033.604.000 fyrir A- og B- hluta. Handbært fé frá rekstri A- og B- hluta samstæða kr. 327.966.000. Fjárfestingarhreyfingar A- og B- hluta samstæða kr. 272.881.000. Söluverð rekstrarfjármuna A- og b-Hluta samstæða kr. 112.187.000. Lántaka A- og B- hluta samstæða kr. 100.000.000. Afborganir langtímalána A- og B- hluta samstæða kr. 171.030.000. Skuldaviðmið er 53,7% fyrir A- og B- hluta. Langtímaskuldir A- og B- hluta alls kr. 566.936.000, þar af kr. 248.444.909 vegna félagslegra íbúða eða 32,13%. Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2016 til síðari umræðu í sveitarstjórn. "



Til máls tók:

Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir að engar breytingar hafa verið gerðar á ársreikningum á milli umræðna í sveitarstjórn nema að bætt var við skýringu nr. 18 er varðar væntanlegt uppgjör við Brú lífeyrissjóð.



Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ársreikning Dalvíkurbyggðar 2016 ásamt ábyrgða- og skuldbindingaryfirliti og áritar ársreikninginn því til staðfestingar.