Styrkbeiðni vegna jólaballs

Málsnúmer 201509029

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 53. fundur - 07.09.2015

Með fundarboði fylgdi bréf frá Lionsklúbbnum Sunnu þar sem óskað er styrks til að standa áfram fyrir jólatrésskemmtun á Dalvík.



Menningarráð samþykkir að styrkja Sunnu um 75.000 kr. á ári 2016-2019. Jafnframt samþykkir Menningarráð að styrkja Kvenfélagið Hvöt og Kvenfélagið Tilraun um 40.000 kr. á ári 2016-2019 vegna jólatrésskemmtana enda sendi þau sveitarfélaginu reikning vegna þessa, strax að skemmtun lokinni.

Menningarráð - 54. fundur - 28.10.2015

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi lagði fram drög að samningum við Kvennfélagið Hvöt, Kvennfélagið Tilraun og Lionsklúbbinn Sunnu vegna jólatrésskemmtana í Dalvíkurbyggð næstu fjögur árin.
Menningarráð samþykkir drögin.