Erindisbréf atvinnumálanefndar.

Málsnúmer 201301126

Vakta málsnúmer

Atvinnumálanefnd - 32. fundur - 13.02.2013

Tekin fyrir tillaga að breytingum á erindisbréfi atvinnumálanefndar í samræmi við nýja samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar. Ekki er um að ræða efnislegar breytingar.

Atvinnumálanefnd samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum erindisbréf eins og það liggur fyrir og vísar því til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 49. fundur - 03.09.2013

Með fundarboði fylgdi erindisbréf  ráðsins með tillögum að breytingum. Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir erindisbréfið eins og það liggur fyrir og vísar því til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fræðsluráð - 175. fundur - 11.09.2013

Með fundarboði fylgdi endurskoðað erindisbréf Fræðsluráðs. Fræðsluráð samþykkir bréfið eins og það liggur fyrir.

Menningarráð - 39. fundur - 13.09.2013

Með fundarboði fylgdi erindisbréf menningarráðs með tillögum að minniháttar breytingum. Menningarráð samþykkir erindisbréfið eins og það liggur fyrir og vísar því til afgreiðslu sveitarstjórnar.