Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 89

Málsnúmer 1909022F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 317. fundur - 31.10.2019

Til afgreiðslu.
4. liður.
  • Á þessum fundi er tekin fyrir eftirtalin fundargerð:
    Verkfundur nr. 7 sem var haldinn 16.08.2019 og var sú fundargerð staðfest 13.09.2019.
    Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 89 Lögð fram til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Veitu- og hafnaráð fór yfir ramma sviðsins að fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 og gerði sviðsstjóri grein fyrir þeim breytingum sem þar er gert ráð fyrir. Einnig kynnti sviðsstjóri drög að fjárfestingum næsta árs og spunnust töluverðar umræður um þær. Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 89 Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum fram lagða ramma að fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 og mun ræða starfs- og fjárhagsáætlun veitu- og hafnasviðs, fyrir árið 2020, á næsta fundi ráðsins. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • .3 201903096 Framkvæmdir 2019.
    Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda á veitu- og hafnasviði á yfirstandandi fjárhagsári. Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 89 Lagt fram til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Í minnisblaði um áform um virkjun Brimnesá kemur eftirfarandi fram:

    „Á þessu ári verður lokið við matsskyldufyrirspurn og er vænst niðurstöðu Skipulagsstofnunar um mánaðarmótin nóvember/desember. Þegar að það liggur fyrir er ljóst hvort að ráðast þurfi í mat á umhverfisáhrifum virkjunar eður ei. Gert er ráð fyrir að ekki þurfi að fara í fullt mat á umhverfisáhrifum og miðast eftirfarandi áætlanir við það.

    Einnig verður frumhönnun virkjunar lokið á þessu ári og mun hún leiða í ljós hagkvæmni virkjunar en þegar að þetta er skrifað er ekki kominn tengikostnaður við dreifikerfi Rariks. Þó lítur út fyrir að um sé að ræða hagkvæman virkjunarkost og gæti virkjunin borgað sig upp á 17-20 árum (án tengikostnaðar).„

    Í niðurstöðum minnisblaðsins kemur eftirfarandi fram:

    „Hér er um að ræða hagkvæman virkjunarkost sem borgar sig upp á 17-20 árum sé einungis miðað við að orkan yrði seld á dreifikerfið og meðalorkugeta um 5.070 MWst/ári. Orkuþörf vegna reksturs Dalvíkurbyggðar er um 3.000 MWst/ári þannig að með virkjun í Brimnesá yrði Dalvíkurbyggð sjálfbær varðandi orkuöflun.

    Ef leið A verður valin varðandi rennslismælingar má gera ráð fyrir að undirbúningskostnaður verði um 13,5 Mkr og 1,2 Mkr á árinu 2020 og að virkjun verði komin í rekstur í lok árs 2025.

    Ef leið B verður valin varðandi rennslismælingar má gera ráð fyrir að undirbúningskostnaður verði um 14,4 Mkr og 5,1 Mkr á árinu 2020 og að virkjun verði komin í rekstur í lok árs 2023. Tíma- og kostnaðaráætlun eru gróflega áætlaðar og er kostnaðaráætlunin án VSK.“

    Fram kemur í minnisblaðinu að framkvæmdakostnaður er um 232 milljónir án vsk.
    Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 89 Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að farin verði leið B, eins og hún er fram sett í umræddu minnisblaði. Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Til máls tóku:
    Katrín Sigurjónsdóttir sem leggur til að veitu- og hafnaráð haldi íbúafund og kynni framkomnar hugmyndir um virkjanaframkvæmdir í Brimnesá til raforkuöflunar fyrir Dalvíkurbyggð.
    Guðmundur St. Jónsson.
    Gunnþór E. Gunnþórsson.

    Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs að farin verði leið B.

    Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veitu- og hafnaráð haldi íbúafund í upphafi næsta árs til kynningar á virkjunarhugmyndunum í Brimnesá.

    Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina. Ekkert fleira í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og eru því allir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.