Íþrótta- og æskulýðsráð - 102, frá 04.09.2018

Málsnúmer 1808012F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 305. fundur - 18.09.2018

Til afgreiðslu:
2. liður, til byggðaráðs.
  • Íþrótta- og æskulýðsráð fór yfir áherslur við gerð starfs-og fjárhagsáætlunar. Rætt var um forgangsröðun verkefna.
    Íþrótta- og æskulýðsráð - 102 Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • . Íþrótta- og æskulýðsráð - 102 Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir gjaldskrá fyrir íþróttamiðstöð og Víkurröst og verður tekið mið af henni við vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2019. Niðurstaða þessa fundar Vísað áfram Bókun fundar Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson sem leggur til að þessum lið verði vísað til byggðaráðs til umfjöllunar ásamt öðrum tillögum að gjaldskrám 2019.

    Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Gunnþórs.
  • Á 872. fundi Byggðaráðs var tekið fyrir erindi frá Jóni Karli Helgasyni fyrir hönd JKH-Kvikmyndagerð ehf., ódagsett en móttekið 17. júlí 2018 skv. rafpósti. Með bréfi þessu er sótt um styrk til Dalvíkurbyggðar til að taka upp atriði á Dalvík og nágrenni í heimildamyndina Sundlaugar á Íslandi. Fram kemur að Sundlaugin á Dalvík og Sundskáli Svarfdæla komi mikið við sögu í myndinni. Hugmyndin er að taka upp í Sundskálanum í september á þessu ári. Áætlaður kostnaður við upptökur á Dalvík og nágrenni er kr. 805.000.

    Til umræðu ofangreint.

    Byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til upplýsingar.
    Byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum að styrkja verkefnið um mat fyrir 7 aðila í 3 daga.
    Lagt fram til kynningar.
    Íþrótta- og æskulýðsráð - 102 Lagt fram til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir að búið er að endurnýja gervigras á sparkvelli. Altís ehf sá um verkið.
    Laga þarf netin í mörkunum.
    Íþrótta- og æskulýðsráð - 102 Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að láta laga netin. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Frá 873. fundi Byggðaráðs:
    Sveitarstjóri lagði fram minnisblað frá fundi sem hann átti með forsvarsmönnum UMFS, Kristjáni Ólafssyni og Birni Friðþjófssyni þann 26.júlí 2018. Á þeim fundi var rætt um stöðu á undirbúningi fyrir uppbyggingu gervigrasvallar á íþróttasvæði UMFS en áætlað er að hefja framkvæmdir eftir síðasta heimaleik í haust. Á fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2018 eru 30 miljónir til UMFS vegna framkvæmda.
    Nú liggur fyrir 149.löggjafarþingi 2018-2019 frumvarp til laga um endurgreiðslur til félagasamtaka til almannaheilla vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda. Markmiðið með lögunum er að styðja við mannvirkjagerð og aðrar framkvæmdir félagasamtaka til almannaheilla og hvetja til þess að þau efli starfsemi sína eða bæti aðstöðu sína.
    Í frumvarpinu er lagt til að endurgreiddur verði sá kostnaður sem nemur virðisaukaskatti vegna mannvirkjagerðar eða annarra framkvæmda á vegum félagasamtaka til almannaheilla.
    Beiðni um endurgreiðslu verður að berast áður en framkvæmdir hefjast og verður metið hvort framkvæmd uppfylli skilyrði fyrir endurgreiðslu. Forsvarsmenn UMFS meta það svo að mikil fjárhagsleg áhætta sé að hefja þetta verk áður en það sé ljóst hvort frumvarpið verði að lögum. Því sé best að fresta framkvæmdarbyrjun fram á árið 2019.

    Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gerður verði viðauki nr.18 til lækkunar á heildarframlagi til framkvæmda UMFS vegna gervigrasvallar á árinu 2018 upp á 30 miljónir króna. Til hækkunar á handbæru fé.
    Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa heildarfjárfestingu vegna framkvæmda gervigrasvallar UMFS til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.
    Íþrótta- og æskulýðsráð - 102 Lagt fram til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar
    Til máls tók:

    Katrín Sigurjónsdóttir.

    Lagt fram til kynningar.
  • Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir stöðu framkvæmda í sundlaug. Rennibrautirnar hafa verið teknar í notkun. Íþrótta- og æskulýðsráð - 102 Ráðið samþykkir merkingar á rennibrautina. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

    Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu eru því lagðir fram til kynningar.