Íþrótta- og æskulýðsráð

105. fundur 04. desember 2018 kl. 08:15 - 09:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Þórunn Andrésdóttir formaður
  • Eydís Arna Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Eiríksson aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Jónína Guðrún Jónsdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
Jóhann Már Kristinsson boðaði forföll. Jónína Guðrún Jónsdóttir mætti í hans stað.

1.Tómstundir í Árskógarskóla

Málsnúmer 201811029Vakta málsnúmer

Tekið fyrir rafpóstur frá foreldraráði Árskógarskóla, þar sem það óskar eftir því að koma því á framfæri við Íþrótta og æskulýðsráð að þegar verið er að skipuleggja æfingatíma í öllum tómstundum ásamt þeim skemmtunum sem félagsmiðstöðin býður uppá fyrir börnin í sveitarfélaginu að passað sé upp á að horfa á allt sveitarfélagið í heild en ekki bara miða við Dalvíkurskóla.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hafði þegar svarað erindinu og er honum falið að vinna þetta áfram í samvinnu við foreldrafélagið.

2.Heilsueflandi samfélag

Málsnúmer 1809078Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á verkefninu Heilsueflandi samfélag. Það er skilningur Embætti Landlæknis að ekki þurfi að gera nýjan samning. Eldri samningur framlengist á meðan samningsaðilar segja honum ekki upp.

3.Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð 2018

Málsnúmer 201810108Vakta málsnúmer

Teknar voru fyrir umsóknir í afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar vegna ársins 2018. Styrkirnir verða afhentir á hátíðarfundi ráðsins 17. janúar næstkomandi.

a) Harpa Hrönn Sigurðardóttir
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Hörpu Hrönn um kr. 75.000.- og vísar því á lið 06-80.

b) Rebekka Lind Aðalsteinsdóttir
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Rebekku Lind um kr. 30.000.- og vísar því á lið 06-80.

c) Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Lovísu Rut um kr. 30.000.- og vísar því á lið 06-80.

d) Hjörleifur H Sveinbjarnarson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Hjörleif um kr. 30.000.- og vísar því á lið 06-80.

e) Amalía Nanna Júlíusdóttir
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Amelíu Nönnu um kr. 30.000.- og vísar því á lið 06-80.

f) Arnór Snær Guðmundsson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Arnór Snæ um kr. 75.000.- og vísar því á lið 06-80.

g) Agnes Fjóla Flosadóttir
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Agnesi Fjólu um kr. 30.000.- og vísar því á lið 06-80.

h) Gunnlaugur Rafn Ingvarsson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Gunnlaug Rafn um kr. 75.000.- og vísar því á lið 06-80.

i) Svavar Örn Hreiðarsson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Svavar Örn um kr. 30.000.- og vísar því á lið 06-80.

j) Guðni Berg Einarsson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Guðna Berg um kr. 75.000.- og vísar því á lið 06-80.

k) Ingvi Örn Friðriksson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Ingva Örn um kr. 150.000.- og vísar því á lið 06-80.

l) Amanda Guðrún Bjarnadóttir
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Amöndu Guðrúnu um kr. 150.000.- og vísar því á lið 06-80.

m) Viktor Hugi Júlíusson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Viktor Huga um kr. 75.000.- og vísar því á lið 06-80.

n) Skíðafélag Dalvíkur - Allir læra skíði
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja skíðafélagið um kr. 100.000.- og vísar því á lið 06-80.

o) Skíðafélag Dalvíkur - Snjór um víða veröld
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Skíðafélagið um kr. 45.000.- og vísar því á lið 06-80.

p) Hestamannafélagið Hringur
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Hestamannafélagið um kr. 250.000.- og vísar því á lið 06-80.

r) Knattspyrnudeild Dalvík/Reynir
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Knattspyrnudeild Dalvík/Reynir um kr. 250.000.- og vísar því á lið 06-80.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Nefndarmenn
  • Þórunn Andrésdóttir formaður
  • Eydís Arna Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Eiríksson aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Jónína Guðrún Jónsdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi