Félagsmálaráð

294. fundur 10. mars 2026 kl. 08:15 - 10:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Júlíus Magnússon formaður
  • Magni Þór Óskarsson varaformaður
  • Nimnual Khakhlong aðalmaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Júlíus Magnússon Formaður félagsmálaráðs
Dagskrá

1.Hjólasöfnun 2026

Málsnúmer 202602126Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 20.02.2026 frá Reiðhjólabændum. Þeir kynna árlega hjólasöfnun en verkefnið á rætur sínar í Hjólasöfnun Barnaheilla, en var afhent grasrótarsamtökum Reiðhjólabænda til umsjónar. Í 15 ár hefur verkefnið verið starfandi og hafa 10.000 hjól verið gefin. Hægt verður að sækja um hjól frá 24. febrúar en verða þau afhent í aprílbyrjun. Eimskip flytur hjólin landshorna á milli.
Félagsmálaráð fagnar verkefninu og felur sviðsstjóra að setja auglýsingu á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

2.Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystra

Málsnúmer 202601100Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 16.02.2026 frá Halldóru Kristínu Hauksdóttur. Upphaf málsins var til umfjöllunar í félagsmálaráði 11. nóvember 2025. Þá hafði málið einnig verið tekið fyrir á fundi byggðaráðs, fundi nr. 1165. Forsaga málsins er sú að sveitarfélögin á Norðurlandi eystra sóttu um styrk til Mennta- og barnamálaráðuneytisins í þágu farsældar barna. Um er að ræða meðferðarúrræði fyrir fjölskyldur. Markmið verkefnisins er að efla farsæld barna og fjölskyldna þeirra með samþættum og snemmtækum stuðningi.
Í dag hefur verið ráðinn teymisstjóri verkefnisins sem og ráðgjafi í þjónustunni. Fjölskylduþjónustan verður til húsa í Rósenborg á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.

3.Gott að eldast

Málsnúmer 202310036Vakta málsnúmer

Erindi barst frá starfsmönnum móttökuteymis Gott að eldast sem og hjúkrunarforstjóra þar sem óskað er eftir að félagsmálaráð endurskoði gjaldskrá vegna heimilisþrifa. Í dag er gjaldið 1.038 krónur (efri gjaldflokkur) en lagt er til að gjaldið verði 1.500 krónur fyrir klukkustund og sama gjald fyrir alla. Ekki er greitt fyrir annað en þrif og verður heimsóknum skipt upp í samræmi við það. Í upphafi tilraunaverkefnis lagði ráðuneyti fram drög að reglum um stuðningsþjónustu sem ekki hefur verið samþykkt en í reglunum var kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita hvað varðar stuðning við athafnir daglegs lífs og heimilishald. Þar hefur verið rætt um gjaldtöku á þrifum sérstalega.
Félagsmálaráð óskar eftir frekari rökstuðningi fyrir ósk um gjaldskrárhækkun frá starfsmönnum sem halda utan um verkefnið Gott að eldast, fyrir næsta fund ráðsins.

4.Hlutverk SIS-mats við framkvæmd þjónustu skv. lögum nr. 382018

Málsnúmer 202603050Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Félag- og húsnæðismálaráðuneytinu dags. 19.02.2026. Þar er kynnt að Alþingi samþykkti á liðnu ári ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Meðal þeirra breytinga sem ný lög fela í sér er að framlög sjóðsins vegna málefna fatlaðs fólks skuli reiknuð á grundvelli samræmds mats á stuðningsþörf á landsvísu. Jafnframt er mælt fyrir um að kveðið skuli nánar á útreikning framlaganna í reglugerði. Í reglugerðinni segir um mat á stuðnings/þjónustuþörf: Útgjaldaþörf þjónustusvæðis er fundin út frá samanlagðri þjónustuþörf íbúa þess. Þjónustuþörf notanda skal ákvörðuð út frá samræmdu mati stuðningsþarfa.

Félags- og húsnæðisráðuneytið telur að sveitarfélögum sé heimilt að breyta reglum sínum þannig að SIS-mat sé gert að skilyrði fyrir þjónustu á grundvelli laga nr. 38/2018. Með þetta í huga telur ráðuneytið að sveitarfélögum/þjónustusvæðum sé ekkert að vanbúnaði að ráðast nú í breytingar á reglum sínum og kalla undantekningarlaust eftir því gagnvart notendum þjónustu skv. lögum nr. 38/2018 að gert verði SIS-mat. Minnt er á að samkvæmt reglugerð um framlögin hafa sveitarfélög/þjónustusvæði svigrúm til þess fram til 1. október n.k. að hrinda þeirri endurskoðun í framkvæmd sem um var samið á milli ríkis og sveitarfélaga.

Viðbúið er að breytingar á reglum sveitarfélaga/þjónustusvæða verði gagnrýndar. Hvað varðar viðbrögð við þeirri gagnrýni vill félags- og húsnæðismálaráðuneytið taka fram:

Engar vísbendingar eru um annað en að SIS-mat sé, bæði að efni til og í framkvæmd, í samræmi við allar kröfur skv. lögum nr. 38/2018 og öðrum þeim meginreglum sem gilda um velferðarþjónustu. Sé gerður ágreiningur um að SIS-matið endurspegli stuðningsþarfir réttilega þarf að hafa skýrlega í huga það eru kröfur laganna sjálfra, ekki SIS-matsins, sem ráða endanlegri niðurstöðu um rétt einstaklinga til þjónustu.
Við breytta framkvæmd ber að huga að stöðu þeirra sem notið hafa þjónustu án þess að SIS-mat hafi farið fram. Sveitarfélögum/þjónustusvæðum er rétt að tryggja að ekki verði rof í þjónustu við þessa einstaklinga, m.a. ef dráttur verður á framkvæmd matsins.
Efasemdir um að nægileg lagaheimild sé til þess að gera SIS-mat að skilyrði þjónustu geta leitt til málaferla. Út frá heildarmati á aðstæðum verður fyrirfram að telja að áhættan af niðurstöðu sé ekki mikil. Ber þar að hafa í huga að löggjafinn hefur lýst skýrum vilja um það hvaða þýðingu SIS-matið eigi að hafa í þjónustukerfinu. Í lögskýringargögnum (greinargerð) er sérstaklega vísað til samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá 15. desember 2023 (sjá meðf.), sem lögunum er m.a. ætlað að hrinda í framkvæmd. Þá er sú niðurstaða mjög ákveðin að jöfnunarsjóði sé skylt að framfylgja nýjum og breyttum lögum frá og með áramótum.
Ráðuneytið er sammála því að rétt sé að undirbúa breytingar á lögum nr. 38/2018 til þess að festa í sessi þau atriði sem endurskoðun á fyrirkomulagi og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk kallar á
Lagt fram til kynningar.

5.Sögustund málaflokkur fatlaðs fólks

Málsnúmer 202603051Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar rafpóstur dags. 27. janúar 2026 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Nú nýverið stóð Sambandið fyrir málþingi um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar.Markmið málþingsins var að skapa vettvang fyrir opið samtal milli framkvæmdaaðila um rekstur málaflokksins, stefnumótun og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þjónustu við fatlað fólk.
Lagt fram til kynningar

6.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri félagsmálasviðs fór yfir fjárhagslega stöðu félagsmálasviðs í janúar og febrúar 2026, auk frávikagreiningar fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Nefndarmenn
  • Júlíus Magnússon formaður
  • Magni Þór Óskarsson varaformaður
  • Nimnual Khakhlong aðalmaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Júlíus Magnússon Formaður félagsmálaráðs