Byggðaráð

796. fundur 12. október 2016 kl. 14:00 - 16:10 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Starfs- og fjárhagsáætlun 2017-2020; veitu- og hafnasvið

Málsnúmer 201605147Vakta málsnúmer

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 14:00.



Þorsteinn kynnti tilögur að starfsáætlun, framkvæmdaáætlun og beiðni um viðauka við fjárhagsramma, en veitu- og hafnaráð hefur afgreitt ofangreindar tillögur frá sér.



Til umræðu ofangreint.



Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs að yfirfara tillögur að starfsáætlun, framkvæmdaáætlun og vinnubækur í samræmi við þær ábendingar sem komu fram á fundinum.

2.Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar; tillögur fyrir árið 2017.

Málsnúmer 201609127Vakta málsnúmer

Á fundinum var farið fyrir tillögur að gjaldskrám fyrir Hafnasjóð, Fráveitu, Vatnsveitu og Hitaveitu.



Þorsteinn vék af fundi kl. 15:50.
Lagt fram, þar sem veitu- og hafnaráð á eftir að afgreiða tillögur að gjaldskrám frá sér.

Fundi slitið - kl. 16:10.

Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs