Húsaleigubætur

Leigjendur húsnæðis geta fengið húsaleigubætur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum: Gerð er krafa um þinglýstan húsaleigusamning sem gildir í a.m.k. 6 mánuði. Ef húsnæðið er án eldunaraðstöðu og snyrtingar, er ekki hægt að fá húsaleigubætur. Réttur til húsaleigubóta er háður tekjum og fellur niður ef tekjur eru yfir viðmiðunarmörkum.

 Sækja þarf um húsaleigubætur á sérstökum eyðublöðum inn á Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.

Húsaleigusamningur á íslensku (tengill)

Húsaleigusamningur á ensku (tengill)

Húsaleigusamningur á pólsku (tengill)

Húsaleigusamningur á spænsku (tengill)