Sveitarstjórn

269. fundur 15. maí 2015 kl. 12:00 - 12:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
  • Kristján Guðmundsson Aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
  • Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
  • Þórhalla Karlsdóttir Varamaður
Fundargerð ritaði: Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri
Dagskrá
Heiða Hilmarsdóttir boðaði forföll og varamaður hennar, Þórhalla Karlsdóttir, mætti í hennar stað.
Valdemar Þór Viðarsson boðaði forföll og varamaður hans, enginn varamaður komst í hans stað.
2. varaforseti, Valdís Guðbrandsdóttir, stjórnaði því fundi.

1.Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2014. Síðari umræða.

Málsnúmer 201412054Vakta málsnúmer

Á 268. fundi sveitarstjórnar var ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2014 tekinn til fyrri umræðu og eftirfarandi var bókað:

"14. 201412054 - Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2014.Fyrri umræða.

Til umfjöllunar og afgreiðslu til sveitarstjórn.

Til máls tók:

Bjarni Th. Bjarnason sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2014.





Helstu niðurstöður ársreiknings Dalvíkurbyggðar 2014 eru:



Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta samstæða jákvæð um kr. 105.428.000.

Rekstrarniðurstaða A- hluta jákvæð um kr. 45.563.000.

Handbært fé frá rekstri A- og B- hluta samstæða kr. 272.262.000.

Fjárfestingarhreyfingar A- og B- hluta samstæða kr. 139.953.000, nettó.

Lántaka A- og B- hluta samstæða kr. 0.

Afborganir langtímalána A- og B- hluta samstæða kr. 114.049.000.

Skuldahlutfall án lífeyrisskuldbindinga sem eru til greiðslu eftir 2029: 77,9%.

Langtímaskuldir A- og B- hluta alls kr. 766.554.000, þar af kr. 305.040.202 vegna Félagslegra íbúða eða 39,8%.





Fleiri tóku ekki til máls.





Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2014 til síðari umræðu í sveitarstjórn."



Til máls tóku:

Bjarni Th. Bjarnason

Þórhalla Karlsdóttir



Fleiri tóku ekki til máls.



Sveitarstjórn þakkar starfsfólki Dalvíkurbyggðar fyrir gott starf og fyrir þeirra framlag til góðs árangurs í rekstri sveitarfélagsins á árinu 2014.



Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ársreikning Dalvíkurbyggðar 2014 eins og hann liggur fyrir og áritar ársreikninginn til staðfestingar.

Fundi slitið - kl. 12:30.

Nefndarmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
  • Kristján Guðmundsson Aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
  • Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
  • Þórhalla Karlsdóttir Varamaður
Fundargerð ritaði: Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri