Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 9

Málsnúmer 2111007F

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 366. fundur - 03.12.2021

Lögð fram til kynningar fundargerð 9. afgreiðslufunda byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar.
  • .1 202111003 Umsókn um byggingarleyfi - Alifuglahús á Klaufabrekkum
    Með umsókn sem barst í byggingagátt HMS óskar Kristján Hjartarson fyrir hönd Gunnlaugs Sigurðssonar og Soffíu Sigurhönnu Hreinsdóttur eftir byggingaleyfi fyrir alifuglahúsi á Klaufabrekkum 3 í Svarfaðardal.
    Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda Klaufabrekkna.
    Erindinu fylgja aðalteikningar og skráningartafla unnar af Stoð ehf.
    Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 9 Byggingaráform samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingaleyfi þegar séruppdrættir hafa borist.
    Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.