Ársfundur; Brák íbúðafélag hses. 28.apríl 2026

Málsnúmer 202604223

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1181. fundur - 30.04.2026

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu gögn varðandi ársfund Brákar íbúðafélags hses. sem haldinn var 28. apríl sl. Fram kemur að stjórn og fulltrúaráð Brákar hafa á undanförnum mánuðum unnið að því að greina rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar, þar með talið mögulega samlegð við rekstur Leigufélagsins Bríetar ehf. Meðfylgjandi er sameiginleg bókun sem var til umræðu undir dagskrárliðnum önnur mál á ársfundi félagsins, þar sem lýst er yfir vilja stjórnar og fulltrúaráðs Brákar til þess að ganga til viðræðna við Leigufélagið Bríeti um mögulega sameiningu félaganna tveggja. Tillagan var ekki til afgreiðslu heldur var gert grein fyrir henni á fundinum.
Komi til þess að stjórnir félaganna tveggja nái samkomulagi um sameiningu verður boðað til aukaársfundar og tillaga þá lögð fyrir stofnaðila til afgreiðslu.

Sveitarstjóri sat ofangreindan fund fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.



Lagt fram til kynningar.