Frá Innviðaráðuneytinu; Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála kynnt í samráðsgátt

Málsnúmer 202505083

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1147. fundur - 22.05.2025

Tekinn fyrir rafpóstur frá Innviðaráðuneytinu, dagsettur þann 14. mai sl., þar sem fram kemur að Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Frestur til að veita umsögn um áformin er til 9. júní nl.
Lagt fram til kynningar.