Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Launa- og mannauðskerfi - skoðun og samanburður - beiðni um viðauka

Málsnúmer 202505067

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1152. fundur - 10.07.2025

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 7.júlí sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2025, deild 21400, vegna innleiðingar á nýju launa- og mannauðskerfi ásamt tengdum lausnum. UT-teymi sveitarfélagsins ásamt lykilstarfsmönnum sem vinna með launa- og mannauðskerfi hafa fengið, sem og setið, nokkrar kynningar frá Advania vegna H3 launa og Origo vegna Kjarna. Einnig hefur hópurinn kynnt sér hvaða lausnir önnur sveitarfélög eru með og þá af hverju. Flest sveitarfélögin eru með H3 og Kjarna. Niðurstaða UT-teymis eftir ítarlega skoðun og samanburð á þessum kerfum er að gengið verði til samninga við Origo um Kjarna, rökin fyrir vali þeirrar lausnar eru rakin í rökstuðningi með beiðni þessari. Ef heimild fæst þá er gert ráð fyrir að innleiðing hefjist um miðjan ágúst.
Byggðaráð samþykki samhljóða með 2 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauki nr.30 við fjárhagsáætlun 2025, samtals að fjárhæð kr. 6.270.440, sem skiptist á eftirfarandi liði, á lið 21400-2850 kr. 1.594.640 og á lið 21400-4331 kr. 4.675.800, viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.