Mímiskórinn - Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202402022

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 101. fundur - 29.02.2024

Tekin fyrir umsókn frá Mímiskórnum - kór eldri borgara. Þau sækja um 400.000 kr. styrk til að halda úti kórastarfi hjá eldri borgurum.
Menningarráð samþykkir með þremur greiddum atkvæðum styrkveitingu að upphæð 300.000 kr. til að mæta kostnaði við verkefnið.