Ósk um fjármagn inn í fjárhagsáætlun fyrir Sjómannadag 2024

Málsnúmer 202307075

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 97. fundur - 07.09.2023

Tekið fyrir bréf frá Ragnheiði Rut Friðgeirsdóttur og Sigmari Erni Harðarsyni, dags. 12. júlí 2023, þar sem þau óska eftir fjármagni fyrir að halda sjómannadaginn hátíðlegan í fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2024.
Menningarráð leggur til að gert verði ráð fyrir 400.000 kr. í að halda sjómannadag Dalvíkurbyggðar hátíðlegan.