Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Fiskidagurinn mikli - umsókn um tækifærisleyfi

Málsnúmer 202306067

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1072. fundur - 29.06.2023

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 16. júní sl., þar sem óskað er umsagnar um tækifærisleyfi frá Fiskideginum mikla í Dalvíkurbyggð vegna Fiskidagsins. Fyrir liggur jákvæð umsögn frá Slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 26. júní sl., að því gefnu að viðburður sé haldinn með hefðbundnum hætti.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Eyjafjarðar.