Leikskólagjöld, tillaga um að fella niður leikskólagjöld meðan á verkfalli stendur.

Málsnúmer 202306016

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 359. fundur - 06.06.2023

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum tillögu forseta sveitarstjórnar að fella niður leikskólagjöld og fæðisgjöld vegna skerðingar á vistun barna í verkfalli BSRB og aðildarfélaga þeirra. Leikskólagjöldin verða leiðrétt í samræmi við þær skerðingar sem börnin verða fyrir. Leiðrétting mun koma fram á fyrsta greiðsluseðli eftir að verkfalli lýkur.