Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra;Uumsagnarbeiðni þorrablót Árskógar

Málsnúmer 202301063

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1055. fundur - 19.01.2023

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 11. janúar 2023, þar sem óskað er umsagnar um tækifærisleyfi fyrir þorrablót haldið í félagsheimilinu Árskógi 4. febrúar nk.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir um að umbeðið leyfi verði veitt með fyrirvara um afgreiðslu slökkviliðsstjóra.