Frá innviðaráðuneytinu; Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga í samráðsgátt

Málsnúmer 202211154

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1050. fundur - 01.12.2022

Tekið fyrir erindi frá innviðaráðuneytinu, dagsett þann 24. nóvember sl., þar sem fram kemur að innviðaráðuneytið vekur athygli á því að drög að reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Í reglugerðinni er mælt fyrir um lágmarksatriði sem fram þurfa að koma í reglum sveitarfélaga um íbúakosningar.
Lagt fram til kynningar.