Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2022

Málsnúmer 202210038

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1045. fundur - 20.10.2022

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 10. október sl., þar sem fram kemur að Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hefur ákveðið að halda skuli aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga þann 11. nóvember nk. Ef sveitarfélög hafi áhuga á að ganga í Samtök orkusveitarfélaga þarf að senda erindi þess efnis til stjórnar samtakanna þannig að hægt sé að taka erindið fyrir á aðalfundi sbr. samþykktirnar 11. nóvember en þann dag klukkan 13:00 verður aðalfundur samtakanna haldinn í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Lagt fram til kynningar.