Erindi Stuðningur við 100 ára afmæli Norræna félagsins á Íslandi

Málsnúmer 202209099

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1040. fundur - 06.10.2022

Tekið fyrir erindi frá Norræna félaginu á Íslandi, dagsett þann 11. september 2022, þar sem fram kemur að félagið stendur að viðburðum í tengslum við aldarafmælið og þar bar hæst afmælis- og höfuðborgarmót daganna 29. og 30. september sl. með vígslu afmælislundar, norrænni ráðstefnu, móttöku og hátíðarkvöldverði. Félagið fer þess á leit við Dalvíkurbyggð að sveitarfélagið styðji við Norræna félagið þar sem afmælishátiðin er fjölbreyttur og viðamikill viðburður.
Lagt fram til kynningar.