Ákvörðun um álagningu útsvars árið 2023

Málsnúmer 202208118

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1044. fundur - 19.10.2022

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að álagningarprósenta útsvars verði óbreytt og verði árið 2023 14,52%.

Sveitarstjórn - 351. fundur - 01.11.2022

Á 1044. fundi byggðaráðs þann 19. október 2022 var eftirfarandi bókað:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að álagningarprósenta útsvars verði óbreytt og verði árið 2023 14,52%."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs og samþykkir að álagningarprósenta útsvars árið 2023 verði 14,52%.