Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Framboðsfrestur til formanns sambandsins

Málsnúmer 202207017

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1032. fundur - 07.07.2022

Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. júlí sl., þar sem fram kemur að framboðsfrestur til formannskjörs Sambandsins er til og með 15. júlí og kjörgengir eru aðalmenn og varamenn í sveitarstjórn. Þeim sem ætla að bjóða sig fram er bent á að tilkynna með því að senda tölvupóst á samband@samband.is. Rétt til þátttöku í formannskosningu eiga landsþingsfulltrúar.
Lagt fram til kynningar.