Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2022

Málsnúmer 202205008

Vakta málsnúmer

Atvinnumála- og kynningarráð - 71. fundur - 04.05.2022

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar fimmtudaginn 19. maí 2022 kl. 10:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA og í fjarfundi og skráðir þátttakendur fá hlekk á fundarkerfi.
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa, Írisi Hauksdóttur og formanni ráðsins, Sigríði Jódísi Gunnarsdóttur, að sækja fundinn ef þær hafa tök á eða boða varamann í sinn stað.

Sveitarstjórn - 345. fundur - 10.05.2022

Á 71. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 4. maí sl. var eftirfarandi bókað:
Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar fimmtudaginn 19. maí 2022 kl. 10:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA og í fjarfundi og skráðir þátttakendur fá hlekk á fundarkerfi. Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa, Írisi Hauksdóttur og formanni ráðsins, Sigríði Jódísi Gunnarsdóttur, að sækja fundinn ef þær hafa tök á eða boða varamann í sinn stað."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu atvinnumála- og kynningarráðs um fulltrúa Dalvíkurbyggðar á fund Markaðsstofu Norðurlands.