Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði.

Málsnúmer 202203067

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 91. fundur - 24.03.2022

Tekin fyrir umsókn frá Björk Eldjárn Kristjánsdóttur. Sótt er um 438.046 kr. til að halda gjaldfrjálsa tónleikaröð víðs vegar í Dalvíkurbyggð með systkinum sínum sem mynda tónlistarhópinn Blood Harmony.
Menningarráð samþykkir með tveimur greiddum atkvæðum styrkveitingu að upphæð 350.000 kr. til að mæta kostnaði við verkefnið.