Til umsagnar 181. mál frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 202201095

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1014. fundur - 27.01.2022

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 20. janúar sl., þar sem Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.), 181. mál. Þess er óskað að umsögn berist eigi síðar en lok dags 3. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.