Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2021

Málsnúmer 202112028

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 134. fundur - 07.12.2021

Samkvæmt reglum um kjör á íþróttamanni ársins þá þurfa félög að skila inn tilnefningum eigi síðar en 31. desember ár hvert.
Kjörinu verður svo lýst í janúar.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að kjörinu verði lýst 13. janúar og felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að bóka Menningarhúsið Berg undir athöfnina. Einnig samþykkir íþrótta- og æskulýðsráð að janúarfundur ráðsins verði haldinn 11. janúar.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 135. fundur - 11.01.2022

Samkvæmt reglum um kjör á íþróttamanni ársins eru það aðal- og varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði sem kjósa til móts við kosningu íbúa.
Byrjað var á því að fara yfir og ræða allar tilnefningar. Kosning ráðsins fór fram með rafrænum hætti. Íbúakosningu lauk í dag.
Einnig var rætt um útfærsluna á kjörinu og tilnefningum frá félögum.

Eftirfarandi tilnefningar bárust:
-Rúnar Júlíus Gunnarsson: Hestar
-Steinar Logi Þórðarson: Knattspyrna
-Símon Gestson: Sund

Íþrótta- og æskulýðsráð - 136. fundur - 13.01.2022

Samkvæmt reglum um kjör á íþróttamanni ársins eru það aðal- og varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði sem kjósa til móts við kosningu íbúa.
Kjör íþróttamanns Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2021 fór fram í menningarhúsinu Bergi. Fundur hófst með undirbúning og athöfnin fór svo fram kl. 17:00 þar sem tilnefndum var veitt viðurkenning og íþróttamaður Dalvíkurbyggðar var tilkynntur. Athöfninni var streymt beint á facebook síðu Dalvíkurbyggðar þar sem ekki var hægt að bjóða gestum til athafnarinnar vegna samkomutakmarkana.

Það var Rúnar Júlíus Gunnarsson, hestamaður sem varð fyrir valinu í ár. Rúnar hefur lengi verið viðloðandi keppni og alltaf stendur hann sig vel. Í usmögn frá hestamannafélaginu kemur fram að árangurinn á síðasta ári hafi verið mjög góður og var Rúnar 8 sinnum í úrslitum, þar af 4 sinnum í 2. sæti. Rúnar endaði svo keppnistímabilið á að sigra Fimmganginn á Haustmóti Léttis í 2. flokki, en það er sá flokkur sem Rúnar keppti í, í íþróttakeppni. Hann er rosalega vandvirkur að eðlisfari og reynir að gera allt eins vel og hann mögulega getur og er sér og félaginu til mikils sóma.
Íþrótta- og æskulýðsráð óskar Rúnari til hamingju til titilinn og hinum til hamingju með tilnefninguna.

Eftirfarandi tilnefningar bárust:
-Rúnar Júlíus Gunnarsson: Hestar
-Steinar Logi Þórðarson: Knattspyrna
-Símon Gestson: Sund