Frá Gunnþóri Eyfjörð Gunnþórssyni; Ósk um lausn frá störfum sem aðalmaður í stjórn Dalbæjar

Málsnúmer 202109066

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 338. fundur - 21.09.2021

Tekið fyrir erindi frá Gunnþóri Eyfjörð Gunnþórssyni, dagsett þann 27. ágúst sl., þar sem hann óskar eftir lausn frá störfum sem aðalmaður í stjórn Dalbæjar vegna anna.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda beiðni um að veita Gunnþóri Eyfjörð lausn frá störfum sem aðalmaður í stjórn Dalbæjar.