Frá Framkvæmdasviði; Aðalskoðun BSÍ leiksvæði; Krílakot

Málsnúmer 202109024

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 995. fundur - 09.09.2021

Með fundarboði byggðaráðs, sem er jafnframt stjórn Eignasjóðs, fylgdi frá framkvæmdasviði skýrsla BSI á Íslandi vegna aðalskoðunar á leikvellinum Krílakoti. Skoðun fór fram 12.07.2021.
Lagt fram til kynningar og vísað til umfjöllunar í fræðsluráði.

Fræðsluráð - 263. fundur - 15.09.2021

Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, fór yfir skýrslu frá BSI sem snýr að eftirliti á leiksvæði á Krílakoti.
Búið er að fara í úrbætur sem hægt er að bregðast við strax. Liggur fyrir að endurnýja þurfi leiktæki á skólalóð Krílakots í samræmi við kröfur reglugerða. Máli vísað til starfs - og fjárhagsáætlunar.