Frá nefndasviði Alþingis; Vinnuskjal með drögum af breytingum, mál nr. 378 frá umhverfis og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 202105024

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 985. fundur - 20.05.2021

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 4. maí 2021, þar sem kynnt er meðfylgjandi vinnuskjal með drögum að breytingum á frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), sem Umhverfis- og samgöngunefnd er að vinna með.

Í drögunum er leitast við að ná málamiðlun milli ólíkra sjónarmiða varðandi málið án þess að missa sjónar að markmiðinu sem sett var fram í þingsályktun nr. 21/150, um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033.
Nefndin stefndi að því að taka málið aftur á dagskrá 12. maí sl. og því væri hægt að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum fram að þeim tíma.
Lagt fram til kynningar.