Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um rekstarleyfi veitinga frá Artic Sea tours - Hafnarbraut 22

Málsnúmer 202105011

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 984. fundur - 06.05.2021

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; rafpóstur dagsettur þann 3. maí 2021, þar sem óskað er umsagnar um rekstrarleyfi frá Artic Sea tours vegna Hafnarbrautar 22 á Dalvík, flokkur II.

Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreint leyfi með fyrirvara um umsagnir frá slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar.
Vísað til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.