Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um rekstrarleyfi - Skeið lodge

Málsnúmer 202102002

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 975. fundur - 11.02.2021

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 27. janúar 2021, þar sem óskað er eftir umsögn um sókn frá Myrian Dalstein fyrir Skeið vist - Skeid lodge, Flokkur III - Gististaður með veitingum en þó ekki áfengisveitingum.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn enda liggja fyrir umsagnir byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra án athugasemda.