Lækkun hámarkshraða á Svarfaðardalsvegi úr 90 í 70 km/kls.

Málsnúmer 202011050

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 345. fundur - 04.12.2020

Með innsendu erindi dags. 05. nóvember 2020 óska þeir Ármann Gunnarsson og Felix Jósafatsson að umhverfisráð hlutist til um að umferðarhraði á Svarfaðardalsvegi verði lækkaður úr 90 km/klst í 70 km/klst.
Umhverfisráð vísar erindinu til endurskoðunar á umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.