Erindi frá gangnamannafélagi Sveinsstaðaafréttar vegna vegamála

Málsnúmer 202004002

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 132. fundur - 07.05.2020

Til umræðu innsent erindi dags. 30. mars 2020 frá gangnamannafélagi Sveinsstaðaafréttar vegna vegamál frá Kóngsstöðum að Stekkjarhúsi.
Landbúnaðarráð þakkar gangnamannafélaginu innsend erindi og upplýsir að sótt hefur verið um styrk í styrkvegasjóð Vegagerðarinnar fyrir umræddum lagfæringum.