Áríðandi - Ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra varðandi skil á ársreikningum

Málsnúmer 202003165

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 940. fundur - 07.04.2020

Tekið fyrir erindi frá skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála dagsett 27. mars þar sem vakin er athygli á auglýsingu um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga.

Byggðaráð samþykkir samhljóða að taka ársreikning Dalvíkurbyggðar 2019 til umræðu og afgreiðslu sem hér segir:
15. apríl, miðvikudagur, ársreikningur 2019 tekinn fyrir í byggðaráði.
21. apríl, þriðjudagur, fyrri umræða í sveitarstjórn.
12. maí, þriðjudagur, síðari umræða í sveitarstjórn.