Í samráðsgátt: Frumvarp til laga um eignahald og nýtingu fasteigna.

Málsnúmer 202002082

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 935. fundur - 27.02.2020

Nú er í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um eignarhald og nýtingu fasteigna, mál S-34/2020.

Markmið frumvarpsins er að skapa stjórnvöldum betri yfirsýn og möguleika til að stýra þróun eignarráða og nýtingar fasteigna, þ.m.t. jarða, í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi.

Hægt er að senda inn umsagnir um frumvarpið til 27. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.