Fjárhagsáætlun 2019, heildarviðauki IV

Málsnúmer 201912067

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 319. fundur - 19.12.2019

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi tillaga að heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2019. Helstu niðurstöður eru:

Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 33,2 m.kr. (var 65,7 m.kr.) en þar af er Aðalsjóður neikvæður um 38.8 m.kr (var 12,7 m.kr.).
Rekstrarniðurstaða B-hluta er jákvæð um 53,9 m.kr. (var 70 m.kr.).
Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta samtals er jákvæð um 70 m.kr. (var 118,6 m.kr.).
Áætlaðar fjárfestingar eru samtals um 324,4 m.kr (voru 346,9 m.kr.).

Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2019.