Tillaga að álagningu útsvars 2020.

Málsnúmer 201910115

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 927. fundur - 21.11.2019

Með fundarboði fylgdi tillaga um álagningu útsvars fyrir árið 2020. Lagt er til að útsvarsprósentan verði óbreytt á milli ára, hámarksútsvar, 14,52%
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að álagningu útsvars fyrir árið 2020 og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 318. fundur - 29.11.2019

Á 927. fundi byggðaráðs þann 21. nóvember 2019 var eftirfarandi til umfjöllunar og samþykkt:
"Tillaga um álagningu útsvars fyrir árið 2020. Lagt er til að útsvarsprósentan verði óbreytt á milli ára, hámarksútsvar, 14,52%.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að álagningu útsvars fyrir árið 2020 og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að útsvarsprósentan verði óbreytt á milli ára, 14,52%.