Frá slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar; Endurnýjuð beiðni um búnaðarkaup 2019

Málsnúmer 201906099

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 911. fundur - 27.06.2019

Tekið fyrir erindi frá slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 3. júní 2019, þar sem slökkviliðsstjóri óskar eftir að fá nýta endurgreiddan virðisaukaskatt að upphæð kr. 991.609 til endurnýjunar og nýkaupa á búnaði fyrir Slökkvilið Dalvíkur samkvæmt meðfylgjandi tillögu.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi og ráðstöfun á viðbótartekjum til búnaðarkaupa samkvæmt tillögu slökkviliðsstjóra.