Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Málaflokkur 21; viðauki við fjárhagsáætlun 2019 vegna endurskoðunar

Málsnúmer 201906089

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 911. fundur - 27.06.2019

Tekið fyrir erindi frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 25. júní 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 1.000.000 við deild 21070; Endurskoðun. Lykill 21070-4330 yrði þá kr. 6.500.000 í stað kr. 5.500.000 Lagt er til að þessum viðauka verði mætt með lækkun á handbæru fé þar sem ekki er metið svigrúm til að mæta viðaukanum innan málaflokksins og/eða með öðrum hætti eins og staða mála er nú.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2019, nr. 13/2019 að upphæð kr. 1.000.000 við deild 21070 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé.