Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn - Ektaréttir

Málsnúmer 201906040

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 911. fundur - 27.06.2019

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, rafbréf dagsett þann 13. júní 2019, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn frá Ektaréttum ehf. kt. 461100-2950 um rekstrarleyfi vegna Baccalá Bars, flokkur II og tegund A. Með fundarboði fylgdu jákvæðar umsagnir byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.