Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Tilkynning um aðalfund fulltrúaráðs EBÍ 20. sept. n.k.

Málsnúmer 201906039

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 911. fundur - 27.06.2019

Tekinn fyrir rafpóstur frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsettur þann 13. júní 2019, þar sem fram kemur að skv. 10.gr laga 68/1994 skal kalla saman aðalfund fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands fjórða hvert ár, næsta ár á eftir reglulegum sveitarstjórnarkosningum.
Í samræmi við ofangreint hefur stjórn EBÍ ákveðið að aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands verði haldinn föstudaginn 20. september n.k. á Hótel Natura.
Kjörnum fulltrúa sveitarfélagsins hefur verið sent fundarboð.

Aðalmaður Dalvíkurbyggðar er Valdimar Bragason og varamaður Valdemar Þór Viðarsson.
Lagt fram til kynningar.