Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; beiðni um viðauka; Sláttur og hirðing 2019

Málsnúmer 201905166

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 913. fundur - 25.07.2019

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 16. júlí 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 vegna sláttar og hirðingar á opnum svæðum að upphæð kr. 1.712.624 með vísan til samantektar frá EB ehf vegna einingarverða. Liður 11410-4969 yrði því kr. 8.508.473 og lagt er til að viðaukanum sé mætt með lækkun á handbæru fé.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 1.712.624, viðauki nr. 20/2019, við deild 11410, liður 4969 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé.