Frá Valdemar Þór Viðarssyni; Varðar stjórnarsetu í Menningarfélaginu Bergi ses

Málsnúmer 201905084

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 314. fundur - 14.05.2019

Tekið fyrir erindi frá Valdemar Þór Viðarssyni, rafpóstur dagsettur þann 12. maí 2019, þar sem fram kemur að Valdemar Þór gefur ekki áfram kost á sér sem aðalmaður í stjórn Menningarfélagsins Berg ses.

Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Valdamer Þór Viðarssyni lausn frá störfum úr stjórn Menningarfélagsins Bergs ses frá næsta aðalfundi félagsins.
Sveitarstjórn færir Valdemar bestu þakkir fyrir hans störf.