Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Ósk um leyfi til sölu á bifreiðinni BA443 Ford Transporter

Málsnúmer 201903108

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 902. fundur - 28.03.2019

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 25. mars 2019, þar sem óskað er eftir heimild til að selja bifreiðina Ford Transporter nr. BA443 en ekki er talin þörf á þessum bíl lengur. Þess er óskað jafnframt að söluandvirði bifreiðarinnar fáist nýtt til kaupa á smærri bíl fyrir vinnuskólann.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs söluna á ofangreindri bifreið og jafnframt er veitt heimild til að ráðstafa söluandvirði bifreiðarinnar til kaupa á bifreið sem hentar starfsseminni í samræmi við gildandi fjárhagsáætlun 2019.